Pétur Þorsteinsson
Sigurður Rúnarsson
Mirela Protopapa
Á aðalfundi Samtaka trúar- og lífsskoðunarfélaga á Íslandi (STLÍ), sem haldinn var í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi þann 11. júní 2026, fór fram kosning í stjórn samtakanna.
Pétur Þorsteinsson frá Óháða söfnuðinum var endurkjörin formaður og Mirela Protopapa var endurkjörin sem meðstjórnandi í stjórn.
Mörður Árnason, sem setið hefur í stjórn STLÍ, lét af stjórnarsetu. Samtökin þakka honum fyrir framlag hans til starfa stjórnar og samstarfs innan STLÍ. Í hans stað var Sigurður Rúnarsson, fulltrúi Siðmenntar, kjörinn sem meðstjórnandi í stjórn.
Ný stjórn STLÍ mun áfram leggja áherslu á það meginmarkmið samtakanna að efla samstarf og samtal milli trúar- og lífsskoðunarfélaga á Íslandi og stuðla að gagnkvæmum skilningi, virðingu og fræðslu um ólíkar trúar- og lífsskoðanir.
STLÍ óskar nýrri stjórn velfarnaðar í störfum sínum og hlakkar til áframhaldandi samstarfs við aðildarfélög samtakanna.
STLÍ – Samtök trúar- og lífsskoðunarfélaga á Íslandi