Samráðsvettvangur
trúar- og lífsskoðunarfélaga á Íslandi
www.stli.is
Samráðsvettvangur
trúar- og lífsskoðunarfélaga á Íslandi
www.stli.is
Formaður
Gjaldkeri
Ritari
Ný stjórn var kjörin á fyrsta aðalfundi STLÍ eftir stofnfund í maí 2026. Kosning stjórnar:
Eitt framboð kom fram til formans á fundinum og var það frá fráfarandi formanni, Pétri og var hann því sjálfkjörinn..
Tvö framboð komu fram á fundinum og voru þau frá Mirelu sem var fráfarandi gjaldkeri og frá Sigurði R. og voru þau einnig sjálfkjörin.
Merði Árnasyni fráfarandi ritara voru þökkuð góð störf.
Kjörin var á stofnfundi nýrra samtaka trú- og lífsskoðunarfélaga þann 20. febrúar 2025
Slíkt næst ekki með því að samsinna hverju sem er eða láta hvað sem er gagnrýnilaust heldur með því að vera reiðubúinn til að hlusta á sjónarmið annarra, setja sig í spor þeirra og virða sjálfsákvörðunarrétt sjálfráða einstaklinga og trúfélaga.
Samráðsvettvangurinn veitir leiðtogum og fulltrúum trúf- og lífsskoðunarfélaga um trúarleg efni tækifæri til að kynnast, stuðlar að málefnalegum samskiptum milli þeirra, liðkar fyrir miðlun upplýsinga og hjálpar þeim að ræða sameiginleg hagsmunamál á borð við aðgengi að þjónustu á opinberum vettvangi og taka á vandamálum sem upp kunna að koma, svo sem í tengslum við einelti, óeirðir, styrjaldir, náttúruhamfarir eða slys.
Þannig getur samráðsvettvangurinn stuðlað að auknu umburðarlyndi og virðingu meðal almennings, m.a. með því að hvetja til faglegrar trúarbragðafræðslu, árétta félagslegt vægi trúar, leiðrétta augljósar rangfærslur og vinna gegn fordómum og neikvæðri mismunun.
Öll trúfélög sem fengið hafa skráningu hjá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu og þannig myndað tengsl við ríkisvaldið hafa rétt á aðild að samráðsvettvanginum.