DRÖG
Lög
Samráðsvettvangs trúfélaga og lífsskoðunarfélaga
1. gr.
Heiti samtakanna er Samráðsvettvangur trúfélaga og lífsskoðunarfélaga á Íslandi (STLÍ). Varnarþing þeirra er í Reykjavík.
Tilgangur
2. gr.
Tilgangur samtakanna er að stuðla að umburðarlyndi og virðingu meðal fólks í ýmsum trúfélögum og lífsskoðunarfélögum með mismunandi trúarafstöðu og ólík lífsviðhorf.
Samtökin standa vörð um trúfrelsi og önnur mannréttindi í samræmi við stefnulýsingu samráðsvettvangsins frá 4. nóvember 2006.
Starfi samtakanna er ætlað að gefa fulltrúum aðildarfélaganna færi á að kynnast, stuðla að málefnalegum samskiptum þeirra, meðal annars um sameiginleg hagsmunamál, liðka fyrir miðlun upplýsinga og vera vettvangur til að taka á vandamálum sem upp koma.
Verklag
3. gr.
Aðildarfélögin njóta jafnræðis innan samtakanna. Þau virða sérstöðu hvert annars í kenningarlegum efnum og starfsháttum.
Aðild
4. gr.
Trúfélög og lífsskoðunarfélög sem fengið hafa skráningu sem slík hjá viðkomandi ráðuneyti hafa rétt til aðildar að samtökunum. Óskráð trúfélög og lífsskoðunarfélög geta fengið aðild, svo fremi ekkert aðildarfélaganna leggist gegn því. Umsókn félags um aðild er tekin fyrir á aðalfundi.
Úrsögn félags úr samtökunum skal vera skrifleg og berast formanni stjórnar.
Heimilt er að víkja félagi úr samtökunum hafi það gerst brotlegt við lög Samráðvettvangsins eða vanvirt þau gildi sem talin eru í 2. gr. Einungis stjórn samtakanna getur gert tillögu um slíka brottvikningu og skal hún þá borin fram á aðalfundi til samþykktar eða synjunar. Til að tillagan nái fram að ganga skal hún samþykkt samhljóða, að undanskildu atkvæði fulltrúa þess félags sem tillagan beinist að. Félag sem vikið hefur verið úr samtökunum getur sótt um aðild að nýju, og skal hún veitt ef ekkert aðildarfélag leggst gegn því.
Stjórn, stjórnarstörf
5. gr.
Stjórn félagsins skal skipuð 3 fulltrúum aðildarfélaga kjörnum á aðalfundi til eins árs í senn. Þeir skulu vera sinn úr hverju aðildarfélagi. Formaður skal kjörinn sérstaklega en að öðru leyti skiptir stjórnin með sér verkum, og skal annar meðstjórnandinn vera gjaldkeri en hinn ritari.
Formaður er talsmaður samtakanna. Hann boðar stjórnarfundi og stjórnar að jafnaði stjórnarfundum og samráðsfundum. Hann sendir út tillögu að dagskrá stjórnarfunda og samráðsfunda.
Gjaldkeri annast fjármál félagsins og leggur fram reikninga þess á aðalfundi.
Ritari heldur saman fundargerðum, félagatali og öðru efni sem snertir starf samtakanna.
Stjórn fer með málefni félagsins milli aðalfunda og annast verkefni sem ákveðin eru á samráðsfundunum.
Meirihluti stjórnar ritar firmað.
Aðalfundur
6. gr.
Aðalfund skal halda eigi síðar en 1. júní ár hvert. Skal hann boðaður með minnst þriggja vikna fyrirvara í tölvupósti, bréfpósti eða með sambærilegum hætti. Aðalfundur er löglegur sé rétt til hans boðað. Einfaldur meirihluti fulltrúa á aðalfundi ræður úrslitum mála, nema um lagabreytingar.
Hvert aðildarfélag hefur einn fulltrúa á aðalfundi með atkvæðisrétt, málfrelsi og tillögurétt. Að auki geta tveir frá hverju félagi setið fundinn með málfrelsi og tillögurétt.
Tillögur um breytingar á lögum þessum skulu hafa borist formanni stjórnar tveimur vikum fyrir boðaðan aðalfund. Til samþykktar slíkri tillögu þarf 2/3 hluta greiddra atkvæða.
Dagskrá aðalfundar er sem hér segir:
1. Kjör fundarstjóra og fundarritara.
2. Skýrsla stjórnar lögð fram og rædd.
3. Reikningar lagðir fram, ræddir og bornir upp.
4. Ákvörðun árgjalds.
5. Aðild nýs félags.
6. Kosning stjórnar:
a) formanns
b) tveggja meðstjórnenda
7. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
8. Önnur mál
Stjórn er heimilt að boða til aukaaðalfundar ef þörf krefur, og skal hann haldinn samkvæmt reglum um aðalfund. Á aukaaðalfundi er þó ekki unnt að breyta lögum félagsins.
Samráðsfundir
7. gr.
Stjórn skal boða til reglulegra samráðsfunda með fulltrúum aðildarfélaganna, að minnsta kosti þrisvar á ári. Þar er rætt starf samtakanna, þar á meðal einstakir viðburðir á þeirra vegum, og mál sem fulltrúar vilja bera upp á fundinum.
Hvert aðildarfélag tilnefnir einn fastafulltrúa og einn eða tvo til vara til setu á samráðsfundunum.
Ákvörðun um viðburð er háð því að ekkert aðildarfélaganna leggist gegn því að efnt sé til viðburðarins. Sömu skilyrði eiga við um yfirlýsingar eða ályktanir í nafni samtakanna.
Árgjald, ráðstöfun tekna
8. gr.
Ákveði aðalfundur að árgjald skuli ekki innheimt skal rekstur samtakanna byggjast á frjálsum framlögum frá aðildarfélögunum ogt öðrum tekjum.
Fjármunum félagsins skal aðeins varið til verkefna sem samrýmast tilgangi samtakanna og eru í samræmi við stefnulýsingu þeirra.
Starfstímabil, reikningsár
9. gr.
Starfstímabil samtakanna er frá aðalfundi til aðalfundar. Reikningsár þeirra er almanaksárið.
Slit
10. gr.
Ákvörðun um slit samtakanna verður aðeins tekin á aðalfundi. Verði samtökunum slitið skulu eignir þeirra renna til hjálparstarfs eða til mannréttindasamtaka. Nú hefur aðalfundur ekki verið haldinn í þrjú ár samfleytt, og telst samtökunum þá slitið. Stjórnarmenn síðustu kjörnu stjórnar, eða forystumenn aðildarfélaga þeirra, skulu þá ganga frá slitunum.
Samþykkt á stofnfundi STLÍ 20. febrúar 2025
Það votta stjórnarmenn kjörnir á fundinum
Pétur Þorsteinsson, formaður
Mirela Protopapa
Mörður Árnason